From WikiRecord, the encyclopedia of everything · from the Icelandic Wikipedia

Bruce Springsteen í Austur-Berlín (1988).

Bruce Springsteen (f. 23. september 1949) er bandarískur tónlistarmaður. Hann reis til frægðar með plötunni Born to Run (1975) og hefur gefið út meira en 20 breiðskífur. Hljómsveitin E Street Band hefur alla jafnan spilað undir með honum. Platan Born in the U.S.A. (1984) jók vinsældir Springsteen enn frekar með titillaginu og smellnum Dancing in the Dark. Algengt þema í tónlist hans er barátta verkafólks [1] og réttlæti. Árið 2026 gaf hann út lagið Streets of Minneapolis í mótmælaskyni við aðgerðir ICE-innflytjendastofnunarinnar undir ríkisstjórn Donald Trump [2].

Hann hefur hlotið 20 Grammy-verðlaun, 2 Golden Globe-verðlaun, Óskarsverðlaun (fyrir lagið Streets of Philadelphia ) og Tony-verðlaun. Innganga hans í Frægðarhöll rokksins var árið 1999.

Breiðskífur

  • Greetings from Asbury Park, N.J. (1973)
  • The Wild, the Innocent & the E Street Shuffle (1973)
  • Born to Run (1975)
  • Darkness on the Edge of Town (1978)
  • The River (1980)
  • Nebraska (1982)
  • Born in the U.S.A. (1984)
  • Tunnel of Love (1987)
  • Human Touch (1992)
  • Lucky Town (1992)
  • The Ghost of Tom Joad (1995)
  • The Rising (2002)
  • Devils & Dust (2005)
  • We Shall Overcome: The Seeger Sessions (2006)
  • Magic (2007)
  • Working on a Dream (2009)
  • Wrecking Ball (2012)
  • High Hopes (2014)
  • Western Stars (2019)
  • Letter to You (2020)
  • Only the Strong Survive (2022)

Tilvísanir

  1. ↑ Bruce Springsteen Biography Allmusic
  2. ↑ Bruce Springsteen releases anti-ICE song, ‘Streets of Minneapolis’, in memory of Alex Pretti and Renee Good Far Out Magazine, sótt 29. janúar 2026
  Þessi tónlistargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.